Við elskum eyjarnar okkar
Við erum að sjálfsögðu öfga stolt af eyjunum okkar, náttúrunni sem umlykur okkur, og sögunni okkar. Við elskum líka að segja fólki sögurnar okkar og hlökkum til að deila þeim með þér.
Hjá Ribsafari starfs sannkallaðir Eyjamenn. Við búum hér í Eyjum og erum flest fædd hér og uppalin en önnur hafa flutt hingað á eldri árum og orðið ástfangin af eyjunum okkar og fólkinu. Eyjamenn hafa frá blautu barnsbeini farið út í úteyjarnar og siglt um á tuðrum eða slöngubátum. En með því að fara á Ribbát getur þú upplifað þessa mögnuðu tilfinningu að vera úti á sjónum og njóta náttúrunnar á spíttbátahraða.
Njóttu þess að upplifa eyjarnar eins og við Eyjamenn gerum. Komdu að sigla með okkur og við segjum þér frá lífinu okkar hér í Vestmannaeyjum, sögunum okkar, náttúru og fleira. Þú getur líka skoðað hvað fólk hefur sagt á Facebook og Tripadvisor um ferðirnar okkar. Við bjóðum upp á klukkustundar eða tveggja tíma siglingu og þá alveg út í úteyjar og jafnvel Súlnasker. Þú getur líka leigt bát með leiðsögumann og skipstjóra fyrir hópinn þinn. Við siglum frá miðjum maí til miðjan september.
Við hlökkum til að eiga frábærar stundir með þér.
RIBSAFARI STARFSFÓLKIÐ
Hér sérðu nokkra af þeim frábæru einstaklingum sem þú gætir hitt á bryggjunni í sumar

Eyþór
Skipstjóri
Eyþór skipstjóri er klassískur sjóari sem elskar að vera úti á sjó að leika sér og njóta náttúrunnar. Hann er einstaklega fær skipstjóri, hann er með húmorinn í lagi og klassískur þúsundþjalasmiður sem hann þarf að vera þar sem hann á 7 börn.

Ómar Páll
Skipstjóri og leiðsögumaður
Ómar Páll er þessi þögla týpa sem fylgist með álengdar en hann er mega fyndinn og sér skoplegu hliðarnar á öllu sem er dásamlegt. Hann er fyndinn og ljúfur og elskar að vinna utandyra og vera út á sjó í dásamlegu náttúrunni okkar. Ómar er svo hæfur að hann er bæði skipstjóri og leiðsögumaður og skiptir um hatta að vild.

Helga Björk
Móttaka og leiðsögn
Helga er sannkallaður engill og hjartahlýrri manneskju er vart hægt að finna. Hún mun taka á móti þér með bros á vör þegar þú mætir til okkar og hún elskar að hitta fólk og spjalla og láta því líða vel. Við elskum hana út fyrir endimörk alheimsins og sérstaklega þegar hún er tilbúin með heitt á könnunni fyrir okkur 🙂

Birta
Leiðsögumaður og móttaka
Birta elskar að annast fólk enda er hún þroskaþjálfi og nýtur þess að vinna með fólki. Hún elskar að hitta nýtt fólk og segja því sögur af fólkinu hér, náttúrunni og magnaðri sögu Vestmannaeyjar. Birta er líka frábær leikari svo það er enn skemmtilegra að hlusta og horfa á hana segja frá.

Ingi Rafn
Skipstjóri og leiðsögumaður
Ingi Rafn er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjunum. Hann er einn af þessum eyjapeyjum sem skellir í eina góða sögu og getur sagt hana án þess að blikna svo maður veit ekki hvort sagan sé sönn eða login sem gerir söguna í raun enn betri. Bíddu bara þangað til þú hittir hann þá veistu hvað við meinum.

Helgi
Leiðsögumaður
Helgi er bjargvætturinn okkar þar sem hann er ekki bara leiðsögmaður hjá okkur heldur er hann í björgunvarsveitinni hér í Eyjum. Helgi er sannur náttúruunnandi sem elskar landafræði og þú gætir jafnvel hitt hann þegar þú skellir þér á fjöllin hér í kring.

Sigurbjörg
Leiðsögumaður
Sigurbjörg er algjör perla sem elskar að sigla og segja þér sögur um Vestmannaeyjar. Hún elskar að kenna fólki um eyjarnar og nýtur þess að eyða tímum með börnum enda er hún að læra að verða leikskólakennari á veturna og sigla með okkur á sumrin.

Erla
Leiðsögumaður
Erla getur brætt mann með brosinu sínu og hún elskar að hlæja og vera innan um fólk. Hún er kokkur af lífi og sál og getur svo sannarlega galdrað fram alls konar mat. Hún fyllir sm sé ekki bara hjörtu okkar af ást og hlátri heldur gefur hún okkur einnig magafylli af ljúffengum mat.

Rabbi
Skipstjóri
Rabbi er skipstjóri af líf og sál. Hann er eigandi fyrirtækisins og elskar að sigla. Hann er einnig faðir og afi tveggja af skipstjóra hjá okkur og tengdapabbi eins af ribsafari gengisins. Nú er komið að þér að giska hverja hann „á“ 🙂

Emilía
Leiðsögumaður
Emilía er norðlendingurinn í hópnum en við fyrirgefum henni það þar sem hún varð ástfangin af eyjapeyja og að sjálfsögðu af Vestmannaeyjum. Hún er hlý og góð; og elskar að vera innan um fólk og segja því frá öllu um eyjarnar, náttúruna og dýralífið.

Björk
Leiðsögumaður
Björk elskar útiveru og vera út í náttúrunni sem og að njóta samvista með fjölskyldu og vinum. Hún dýrkar íslenska náttúru og meira að segja meira en dásamlegu kökurnar sem hún bakar og skreytir listamannslega sem að sjálfsögðu gerir okkur hin hjá Ribsafarai öfga sæl 🙂

Guðbjörn
Leiðsögumaður
Guðbjörn er litla barnið okkar í hópnum en hann hefur þó gert meira en margur gerir um alla ævina. Hann hefur ferðast um víða veröld og verið í margskonar sjálfboðaliðum störfum um heim allan. En hann elskar náttúrulega Eyjarnar okkar allra mest og finnst fátt skemmtilegra en segja fólk frá þeim.

Alexander
Leiðsögumaður
Alexander er unglambið í hópnum okkar. Ok myndin er kannski svolítið gömul svo ekki taka mark af henni 🙂 Hann nýtur sín einna best á sjó og að sigla um eyjarnar og segja frá þeim og lífinu hér í Vestmannaejum.

Auðbjörg
Leiðsögumaður
Auðbjörg er spennufíkillinn okkar og dugnaðarforkur. Hún elskar að hoppa um borð í ribbátunum og sigla um eyjarnar. Hún er einstaklega dugleg og virkilega góð við alla sem hún hittir.

Drífa Þöll
Leiðsögumaður
Drífa er kennari og bókasafnsvörður. Hún elskar bækur, þjóðsögur og Íslendingasögur og að sjálfsögðu elskar hún Eyjarnar sjálfar. En heitasta ástin er EUROVISION svo ef þú biður hana fallega þá getur hún pottþétt tekið eitt eða tvö júróvisíon lög fyrir þig 😉

Esther
Leiðsögumaður
Esther er kennari og elskar að sigla um eyjarnar okkar og hún hefur gert það síðan hún tók fyrstu skrefin. Hún elskar að sigla um höfin blá. Ester er líka tónlistarunnandi og spilar á gítar, ukulele og alls konar önnur hljóðfæri. Alltaf frábært að hafa hana með í partýum.

Gunni
Skipstjóri
Ef þú flettir upp í orðabók „Eyjapeyi“ þá birtist mynd af Gunna Ella Pé. Þessi snillingur er algjör náttúruunnandi sem elskar eyjarnar sínar næstum jafnmikið og hann elskar konuna sína hana Drífu. Gunni er algjör þúsundþjalasmiður og það er bara ómögulegt að láta sér leiðast í kringum Gunna.

Klaudia
Leiðsögumaður
Klaudia er menningarvitinn okkar þar sem hún vinnur líka á Fjölmenningarsetri Vestmannaeyjabæjar. Hún er algjör snillingur og talar fjögur tungumál reiprennandi þ.e. íslensku, ensku, pólsku og spænsku.

Laila
Skrifstofa og leiðsögn
Laila elskar og hlæja og brosa og hún getur sagt þér sögur með leikrænum tilþrifum. Jafnvel þó hún sé bara búin að stækka um heilan meter síðan hún fæddist þá slær hún ekki slöku við og dregur bátana í land eftir hvern túr eins og enginn sé morgundagurinn – vittu bara til og sjáðu. Margur er knár þótt hann sé smár.

Hjalli
Leiðsögumaður
Hjalli er brandarakall og sannur eyjapeyi. Hann hefur klifrað um eyjarnar síðan hann fór að skríða – eða svo segir hann. Hann á það náttúrulega til að ýkja smá sögurnar en það gerir sögurnar hans bara svo miklu betri 🙂
Bátarnir okkar
Ribsafari bátarnir okkar eru harðbotna slöngubátar sem geta farið á spítthraða um höfin blá.
Við erum með tvo ribbáta sem rúmar 20 manns en við tökum að hámarki 12 manns í hvern bát í hverja ferð.
Stóri Örn er Techno Marine 12 IB bátur. 12 metra ribbátur með tvær innbyggðar 400 hp Volvo vélar. Stóri Örn var smíðaður fyrir Ribsafari í Póllandi árið 2012.
Öldu Ljón er líka Techno Marine 12 IB. 12 metra ribbátur með tvær innbyggðar 400 hp Volvo vélar. Öldu Ljón var smíðaður fyrir Ribsafari í Póllandi árið 2016.
Bátarnir okkar eru sérsmíðaðir fyrir okkur þannig að þeir uppfylli alla staðla og þarfir okkar. Bátarnir eru með einskonar hnökkum sem þú situr á eins og á hestbaki á meðan við rennum yfir öldurnar. Og þú heldur þér í handfang fyrir framan þig á meðan á ferðinni stendur.
Allir farþegar sem fara í ferð með okkur þurfa að fylgja ákveðnum öryggisreglum.